Trump fordæmir gyðingahatur

Donald Trump.
Donald Trump. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að það ætti ekki að vera neitt umburðarlyndi gagnvart gyðingahatri. Ummælin lét Trump falla nokkrum klukkustundum eftir að maður réðst inn í bænahús gyðinga í Pittsburgh og myrti að minnsta kosti ellefu.

„Þetta fjöldamorð er hrein illska og það er erfitt að trúa þessu. Þjóðin og heimurinn allur er í áfalli,“ sagði Trump.

„Það verður að fordæma gyðingahatur og horfast í augu við það hvar sem það birtist.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert