Mikil skelfing greip um sig þegar árásarmaður hóf skothríð á veitingastaðnum Borderline Bar and Grill í borginni Thousand Oaks í gærkvöldi. 12 létu lífið í árásinni en tugir manna voru á veitingastaðnum eða í nánasta nágrenni hans þegar skothríðin hófst.
Nick Champion er á meðal þeirra sem komust lífs af í árásinni og er þetta önnur skotárásin sem hann upplifir á rúmu ári. Champion var á tónleikunum í Las Vegas í október í fyrra þegar Stephen Paddock skaut 58 til bana og særði 851.
„Þetta skiptir miklu máli fyrir okkur. Við erum stór fjölskylda, og því miður er þetta í annað sinn sem við verðum fyrir árás,“ sagði Champion í sjónvarpsviðtali eftir árásina í gærkvöldi en talið er að að minnsta kosti 30 manns sem voru á veitingastaðnum í Thousand Oaks hafi einnig upplifað skotárásina í Las Vegas.
Eins og í Las Vegas voru kántrý-tónleikar á veitingastaðnum þar sem skotárásin átti sér stað í gærkvöldi.
Katie Ray var einnig í Las Vegas í fyrra og komst lífs af í árásinni í gær. Ray segir í samtali við Huffington Post að Borderline-barinn hafi breyst í eins konar vettvang fyrir sáluhjálp fyrir þá sem upplifðu árásina í Las Vegas og að hópurinn hefði hist þar reglulega og orðið mjög náinn. „Að hittast þarna og sjá hvort annað veitti mörgum okkar hugarró,“ segir hún.
Skotárásir verða sífellt algengari í Bandaríkjunum en sex skotárásir hafa orðið á þessum fyrstu átta dögum nóvembermánaðar, þar af þrjár mannskæðar. Í október voru 18 mannskæðar skotárásir framkvæmdar í Bandaríkjunum, sú mannskæðasta í Pennsylvaníu þar sem karlmaður réðst inn í bænahús gyðinga í Pittsburgh og skaut ellefu til bana.