Lögreglan í Melbourne í Ástralíu handtók fyrir skömmu mann sem kveikti í bifreið sinni og stakk tvær manneskjur í miðborginni. Árásarmaðurinn var skotinn af lögreglu og er þungt haldinn, samkvæmt fréttum ástralskra fjölmiðla.
Búið er að loka af svæðið í kring og biður lögregla fólk um að halda sig fjarri miðborginni. Fólkið sem varð fyrir árásinni er komið á sjúkrahús. Ekki er talið að árásarmennirnir séu fleiri.