Miley Cyrus missir húsið í gróðureldunum

Miley er mikill dýravinur, en öll dýrin hennar, auk ástarinnar …
Miley er mikill dýravinur, en öll dýrin hennar, auk ástarinnar í lífi hennar, komust heilu á höldnu frá eldunum. AFP

Söngkonan Miley Cyrus og unnusti hennar, leikarinn Liam Hemsworth, eru á meðal þeirra sem misst hafa heimili sitt í gróðureldunum í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Cyrus greinir frá þessu á Twitter og segist vera ein af þeim heppnu.

Miley er mikill dýravinur, en öll dýrin hennar, auk ástarinnar í lífi hennar, komust heilu og höldnu frá eldunum. „Það er það eina sem skiptir máli,“ skrifar söngkonan á Twitter. Hún segir húsið þeirra ekki standa lengur en minningarnar sem hún á með fjölskyldu og vinum séu þar enn.

Söngvarinn Robin Thicke þakkaði á Instagram slökkviliðinu fyrir að hætta lífi sínu til að reyna að bjarga húsinu hans. Fjölskylda hans er heil á húfi.

View this post on Instagram

A post shared by Robin Thicke (@robinthicke) on Nov 11, 2018 at 12:47pm PST


Samkvæmt vef BBC eru Kim Kardashian-West og fjölskylda, Lady Gaga, Orlando Bloom, Caitlyn Jenner og Neil Young einnig meðal þeirra sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Kaliforníu vegna eldanna, sem hafa orðið á fjórða tug manns að bana. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert