Annar stór skjálfti

Annar stór jarðskjálfti var að ríða yfir skammt frá Nýju-Kaledóníu í Kyrrahafi. Þessi sjálfti mældist 6,6 stig en fyrr í morgun reið annar yfir sem mældist 7,5 stig.

Skjálftinn reið yfir klukkan 6:43 og er á 10 km dýpri, í um 192 km fjarlægð frá Tadine á Nýju-Kaledóníu. 

Ekki hefur verið gefin út flóðbylgjuviðvörun vegna seinni skjálftans en í morgun var varað við flóðbylgju á þessum slóðum. Engar fregnir hafa borist af manntjóni né skemmdum af völdum skjálftanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert