Tilnefnd sem sendiherra hjá SÞ

Heather Nauert.
Heather Nauert. AFP

Donald Trump Bandaríkjanna hefur tilnefnt Heather Nauert, talskonu utanríkisráðuneytisins og fyrrverandi fréttaþul sjónvarpsstöðvarinnar Fox News, sem sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum.

Nauert kemur í stað Nikki Haley sem tilkynnti í október að hún ætlaði að hætta en bandarískir fjölmiðlar höfðu áður fullyrt að Nauert myndi taka við embættinu.

Trump sagði við blaðamenn að Nauert sé „mjög hæfileikaríkur, mjög snjall“ meðlimur ríkisstjórnarinnar.

Trump hefur einnig tilnefnt William Barr sem næsta dómsmálaráðherra Bandaríkjanna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert