„Gulu vestin“ mótmæla í Brussel

AFP

Mótmæli sem kennd eru við gul vesti fara ekki einungis fram í Frakklandi heldur líka Belgíu. Lögreglan í höfuðborginni Brussel þurfti að beita táragasi og vatnsþrýstibyssum gegn mótmælendum í dag. Um 400 manns voru handteknir.

„Lögreglumaður slasaðist á andliti. Hann var færður á spítala en er ekki í lífshættu,“ sagði fjölmiðlafulltrúi lögreglunnar í Brussel við AFP í dag. Hún sagði að mótmælendur hefðu kastað ýmsum lausamunum í átt að lögreglu.

Um eitt þúsund manns tóku þátt í mótmælunum sem urðu til þess að loka þurfti stóru svæði í Brussel þar sem Framkvæmdastjórn ESB og Evrópuþingið eru til húsa.

Mót­mæli „gulu vest­anna“ hóf­ust fyr­ir þrem­ur vik­um í París er fólk flykkt­ist út á göt­ur til að mót­mæla hækk­un­um á eldsneyt­is­skött­um. Upphaf þeirra má rekja til hækkun skatta á eldsneyti en mótmælin hafa breyst í almenn mótmæli gegn forseta Frakklands, Emmanuel Macron. Rík­is­stjórn­in seg­ir mót­mæl­un­um hafa verið rænt af al­menn­ingi og nú séu það öfga­menn sem þeim stjórni.

AFP
AFP
AFP
AFP
AFP
AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert