Stjórnendur breskra fyrirtækja gagnrýna stjórnvöld í Bretlandi fyrir að einblína á átök innan og milli flokka fremur en að undirbúa ríkið fyrir útgöngu úr Evrópusambandinu. Segja þau að tíminn sé naumur og að ekki komi til greina að ganga úr ESB án samnings.
Stjórnendur breskra fyrirtækja óttast að sú leið verði farin, það er útganga án samnings, og hafa fimm stór samtök atvinnurekenda sent ríkisstjórninni sameiginlega yfirlýsingu þar sem þau hvetja stjórnmálamenn til að leggja stjórnmáladeilur til hliðar og einblína á framtíð bresks viðskipta- og efnahagslífs.
„Árangursleysið á þinginu eykur líkurnar á útgöngu án samnings,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni.
100 dagar eru þar til Bretland á að ganga formlega úr ESB og segjast stjórnendur stærstu fyrirtækja Bretlands fyllast skelfingu þegar þeir fylgjast með átökunum sem fram fara á breska þinginu þessa dagana.
Fjórir stjórnarandstöðuflokkar sem sæti eiga í neðri deild breska þingsins lögðu fram vantrauststillögu á ríkisstjórn Theresu May, forsætisráðherra og leiðtoga Íhaldsflokksins, í gærkvöldi.
Leiðtogi Skoska þjóðarflokksins í neðri deildinni, Ian Blackford, sagði að ákveðið hafi verið að leggja fram tillöguna þar sem Verkamannaflokkurinn hafi guggnað á því. Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins, lagði fram vantrauststillögu á May fyrr í gær en hún var höfð að engu af ríkisstjórninni. Ríkisstjórnin þarf hins vegar ekki að taka vantrauststillögu flokkanna fjögurra til umfjöllunar þar sem hún er ekki lögð fram að leiðtoga stjórnarandstöðunnar.
Ríkisstjórnin hittist í gær til að undirbúa útgöngu úr Evrópusambandinu án samnings. Mikil óvissa ríkir hvort Brexit-samningurinn, sem ríkisstjórnin og Evrópusambandið hafa náð sátt um, verði samþykktur á breska þinginu í janúar.
140.000 fyrirtæki hafa fengið bréf frá ríkisstjórninni þar sem þau eru hvött til að fylgja eftir viðbragðsáætlun stjórnvalda um útgöngu án samnings, verði það leiðin sem farin verður. Viðbragðsáætlunin, sem telur um 100 blaðsíður, verður kynnt formlega á föstudag.