Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hvetur Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, til að fresta árlegri stefnuræðu sinni (e. state of the union) vegna þess ástands sem skapast hefur vegna lokana alríkisstofnana síðustu þrjár vikur.
„Því miður, vegna öryggisástæðna, legg ég til að við finnum nýja og betri dagsetningu eftir að alríkisstofnanir opna á ný, nema ef tekst að binda enda á lokanir í vikunni,“ segir í bréfi sem Pelosi skrifar forsetanum í dag. Annar kostur í stöðunni að hennar mati er að forsetinn birti þingmönnum stefnuræðuna skriflega í lok mánaðarins.
Um fjórðungur bandarískra ríkisstofnana hefur verið lokaður í rúmlega þrjár vikur þar sem Trump hefur neitað að skrifa undir fjárlög ársins nema þar verði sett sérstakt fjármagn til að reisa múr á landamærum Bandaríkjanna að Mexíkó. Pelosi hefur fullyrt að ekki komi til greina að verða við kröfum Trumps.