Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hefur sent Donald Trump Bandaríkjaforseta boð um að halda stefnuræðu sína á þriðjudaginn eftir viku, 5. febrúar. Pelosi fullyrðir að Trump hafi þekkst boðið en forsetinn hefur ekki tjáð sig um boðið, enn þá.
Trump greindi frá því á föstudag að hann hefði samþykkt fjárlög bandaríska ríkisins til næstu þriggja vikna og að þær alríkisstofnanir sem þá höfðu verið lokaðar í 35 daga myndu opna á ný og 800.000 starfsmenn, sem hafa verið launalausir síðan, fengju nú greidd laun.
Upphaflega stóð til að Trump flytti stefnuræðuna í lok janúar, venju samkvæmt, en Pelosi sagði Trump að fresta ræðunni þar til deilan leystist. Hann sagði nei og skoraði á hana að neita honum um tækifærið. Pelosi gerði nákvæmlega það er hún meinaði forsetanum að flytja ræðuna af öryggisástæðum.
Ef Trump mun í raun og veru flytja ræðuna 5. febrúar verða einungis tíu dagar í að nýsamþykkta fjárlagafrumvarpið renni út. Í því er hvergi minnst á greiðslur fyrir múrinn á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó svo ljóst er að deilumálið sem olli lokunum alríkisstofnunum fyrir áramót verður aftur orðið helsta þrætuepli bandarískra stjórnmála innan nokkurra daga.