Rússar fordæma afskipti ESB-ríkja

Juan Guaido. Rússnesk stjórnvöld eru ekki sátt við þau Evrópuríki …
Juan Guaido. Rússnesk stjórnvöld eru ekki sátt við þau Evrópuríki sem hafa nú viðurkennt hann sem forseta Venesúela. AFP

Stjórnvöld í Rússlandi fordæmdu í dag það sem þau segja vera afskipti nokkurra Evrópuríkja af innanlandsmálum Venesúela.

Spánn og Bret­land bættust í morgun í hóp þeirra þjóða sem viður­kenna Juan Guaidó sem for­seta Venesúela. Fyr­ir hafa sjö önn­ur ríki Evr­ópu­sam­bands­ins viður­kennt Guaidó sem for­seta, auk Banda­ríkj­anna, Kan­ada, Ástr­al­íu og nokk­urra ríkja Suður-Am­er­íku.

Ríki ESB gáfu Nicolas Maduro, for­seta Venesúela, frest þar til í gær­kvöldi til að boða til nýrra for­seta­kosn­inga en hann lýsti því yfir seint í gær­kvöldi að hann myndi ekki láta und­an þeim þrýst­ingi.

Sagði Dmitry Peskov, talsmaður rússnesku stjórnarinnar, þetta tilraun til að réttlæta valdarán og að um væri að ræða afskipti af innanríkismálum Venesúela.

Slík afskipti, sagði Peskov, gætu ekki leitt til friðsamlegrar, áhrifaríkrar og varanlegrar lausnar á vanda landsins.

Þá ítrekaði hann þá afstöðu Rússa að þeir einu sem leyst gætu  vandann væru íbúar Venesúela.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert