Með lífshættulega höfuðáverka

Tilkynning barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu skömmu eftir klukkan 17:00 í dag um slagsmál við Skólaveg í Grafarvogi. Þar slógust tveir einstaklingar utandyra svo heiftarlega samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni að flytja þurfti annan þeirra með sjúkrabifreið á slysadeild með lífshættulega höfuðáverka. Málið er í rannsókn.

Lögreglan hafði annars afskipti af nokkrum ökumönnum í kvöld vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Þrír þeirra voru einnig án ökuréttinda. Einn þeirra var enn fremur við akstur á bifreið sem var á röngum númerum og ótryggð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert