Hjálpargögn eru á leið yfir landamæri Venesúela frá Brasilíu með friðsælum hætti. Þetta skrifaði stjórnarandstöðuleiðtoginn Juan Guaidó á Twitter nú fyrir skömmu. Her Venesúela hafði fram að því reynt að meina sjálfboðaliðum að koma hjálpargögnum í landið.
Auk þess eru hjálpargögn á leið til landsins frá Kólumbíu.
¡Atención Venezuela!
— Juan Guaidó (@jguaido) February 23, 2019
Anunciamos oficialmente que YA ENTRÓ el primer cargamento de ayuda humanitaria por nuestra frontera con Brasil.
¡Esto es un gran logro, Venezuela!
¡Seguimos! #23FAvalanchaHumanitaria
Mikil spenna hefur verið á landamærum Venesúela og Brasilíu í dag. Bandaríkin hafa fordæmt her Venesúela fyrir að skjóta á fólk sem reynir að komast yfir landamærin en að minnsta kosti tveir hafa látist í átökunum í dag.
Guaidó hefur boðið hermenn sem snúa baki við Nicolas Maduro, forseta landsins, velkomna og heitir þeim friðhelgi.