Óttast mislingafaraldur

Mislingar eru bráðsmitandi.
Mislingar eru bráðsmitandi. AFP
Frönsk yfirvöld óttast fjölgun mislingasmita en fáir sjúkdómar smitast jafn hratt og mislingar. Í síðasta mánuði var varað við mislingafaraldri á Val-Thorens-skíðasvæðinu en 18 manns greindust með mislinga þar í febrúar. Svæðið er afar vinsæll áfangastaður bæði innlendra sem og erlendra skíðamanna. Flestir þeirra sem smituðust eru starfsmenn skíðasvæðisins sem eru ungir að árum. 
 
Að sögn Olivier Robineau, sem er sérfræðingur í farsóttum við Tourcoing-sjúkrahúsið, getur einn sjúklingur smitað 18 aðra ef þeir hafa ekki verið bólusettir eða fengið mislinga sem börn.
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, greindi frá því á föstudag að 75% allra mislingasmita sem vitað var um í fyrra voru í tíu ríkjum. Þeirra á meðal eru Frakkland, Brasilía og Úkraína, að því er segir í frétt The Local. 
Heilbrigðisráðherra Frakklands, Agnes Buzyn, segir í viðtali við Le Parisien að það veki sérstaka athygli að Frakkland sé þar á meðal, ekki síst fyrir þær sakir hversu auðvelt aðgengi að bólusetningum er í landinu.
Það sem af er ári hafa 244 greinst með mislinga í Frakklandi. Í fyrra voru mislingasmitin 2.913 talsins. Hvergi í Evrópu voru smitin jafn mörg. Árið 2017 greindust 519 með mislinga í Frakklandi. 
Helsta ástæðan fyrir því að fleiri fá mislinga í ríkjum Evrópu og víðar á Vesturlöndum er sú að færri láta bólusetja börn sín. Í fyrra létust 3 í Frakklandi úr mislingum. 32 ára gömul móðir sem ekki var bólusett, 26 ára maður með áunna ónæmisbæklun og 17 ára stúlka. Frá 2008 hafa 23 látist úr mislingum í Frakklandi.
Bólusetning gegn mislingum gefur um 95% vörn.
Bólusetning gegn mislingum gefur um 95% vörn. AFP

Upplýsingar af vef embættis landlæknis

Mislingar er veirusjúkdómur sem er mjög smitandi og einkennist af hita og útbrotum um allan líkamann. Hann getur verið hættulegur og jafnvel valdið dauða.

Faraldsfræði
Mislingar var algengur sjúkdómur á meðal barna hér á árum áður. En eftir að farið var að bólusetja gegn honum hefur dregið mjög úr algengi hans í hinum vestræna heimi. Öllu jafna eru mislingar mildur sjúkdómur hjá börnum en allt að 10% þeirra sem sýkjast fá alvarlega fylgikvilla svo sem heilabólgu eða lungnabólgu.
Mislingafaraldur kom upp í Evrópu á árinu 2011 og 2012 og greindust um 30 þúsund einstaklingar með mislinga hvort árið. Flestir þeirra sem veiktust voru í Frakklandi, Ítalíu, Rúmeníu, Spáni og á Bretlandseyjum og voru óbólusettir. Margir þeirra sem sýktust dóu og aðrir hlutu alvarlega fylgikvilla.

Smitleiðir og meðgöngutími
Mislingaveiran er mjög smitandi og berst milli manna með úða frá öndunarfærum (t.d. hósta og hnerra). Veiran getur lifað og valdið smiti í allt að tvær klukkustundir eftir að hún berst út í andrúmsloftið.

Einkenni sjúkdómsins
Einkenni mislinga koma fram um 10–12 dögum eftir smit og geta verið mismikil eftir einstaklingum. Þau byrja oft með flensulíkum einkennum þ.e. hita, nefrennsli, sviða í augum, hósta, bólgnum eitlum og höfuðverk. Á þriðja eða fjórða degi veikindanna koma í flestum tilfellum fram útbrot sem ná yfir allan líkamann og standa í 3–4 daga eða þar til sjúkdómurinn fer að réna.
Mislingaveiran getur verið hættuleg og jafnvel valdið dauða. Alvarlegir sjúkdómar eins og eyrna- eða lungnabólga, kviðverkir, uppköst, niðurgangur og einnig heilabólga geta verið afleiðing mislinga.
Alvarlegar heilaskemmdir af völdum mislinga geta einnig komið fram mörgum mánuðum eftir sýkinguna.

Greining
Einkenni mislinga geta verið lík ýmsum öðrum sjúkdómum, rétt er að hafa samband við lækni til að fá staðfestingu á að um mislinga sé að ræða.

Meðferð
Sýklalyf gagnast lítið gegn mislingum, þó getur verið nauðsynlegt að meðhöndla sýkingar sem eru afleiðingar af sjálfum sjúkdómnum með sýklalyfjum. Önnur meðferð lýtur að hvíld, vökvainntekt og næringu. Hitalækkandi lyf geta hjálpað sjúklingnum að líða betur.

Forvarnir
Bólusetning gegn mislingum gefur um 95% vörn. Þátttaka á Íslandi í bólusetningu gegn mislingum hefur verið með ágætum á undanförnum árum eða tæplega 95%. Foreldrar eru hvattir til að halda áfram góðri þátttöku í bólusetningum því aðeins á þann hátt má halda þessum alvarlega smitsjúkdómi frá landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert