Risaskjaldbaka af mjög fágætri tegund drapst í Kína. Talið er að aðeins þrjár skjaldbökur af tegundinni séu nú á lífi í heiminum.
Tegundin er kennd við Yangtze. Skjaldbakan sem nú er dauð var níutíu ára og búsett í Suzhou-dýragarðinum í suðurhluta Kína. Hún var kvenkyns og var kölluð Rafetus.
Sérfræðingar höfðu reynt að sæða hana fimm sinnum skömmu áður en hún drapst. Það bar ekki árangur.
Tegundin er í alvarlegri útrýmingarhættu vegna veiða. Þá hafa búsvæði hennar verið eyðilögð.
Eitt karldýr af tegundinni er nú í kínverskum dýuragarði og tvær aðrar lifa villtar í Víetnam. Skjaldbakan er hlédræg, heldur til í leðju, og því hefur verið mjög erfitt að finna villt dýr.