Drottningin miður sín

Elísabet Englandsdrottning.
Elísabet Englandsdrottning. AFP

Elísabet Englandsdrottning segist vera miður sín vegna eldsvoðans í kirkjunni Notre Dame í París í bréfi sínu til Emmanuels Macron Frakklandsforseta.

„Við Filippus prins erum mjög sorgmædd yfir því að sjá myndirnar af eldinum sem læsti sig í dómkirkjuna Notre Dame,“ skrifaði Elísabet.

„Hugur minn og bænir eru hjá þeim sem biðja bænir í dómkirkjunni og hjá öllum Frökkum á þessum erfiðu tímum.“

Frá eldsvoðanum í Notre Dame.
Frá eldsvoðanum í Notre Dame. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert