Fengu Pulitzer-verðlaun sem þau vildu ekki

Capital Gazette í Annapolis hlaut sérstök Pulitzer-verðlaun í ár fyrir …
Capital Gazette í Annapolis hlaut sérstök Pulitzer-verðlaun í ár fyrir umfjöllun um skotárás sem gerð var á ritstjórnarskrifstofu blaðsins. AFP

Ritstjórn á litlu bandarísku dagblaði hlaut hin eftirsóttu Pulitzer-verðlaun fyrir að fjalla um skotárás sem gerð var á hennar eigin ritstjórnarskrifstofu. Það brutust þó engin fagnaðarlæti út meðal starfsmannanna á dagblaðinu Capital Gazette í Maryland er þeim var tilkynnt um verðlaunin sem eru virtustu blaðamannaverðlaun Bandaríkjanna.

Starfsfólkið faðmaði hvert annað og minntist þeirra fimm samstarfsmanna sem féllu í árás byssumanns sem ruddist inn á skrifstofuna í júní í fyrra. 

Í ár hljóta New York Times og Washington Post einnig verðlaunin fyrir skrif tengd Donald Trump forseta. Times hlaut verðlaunin fyrir umfjöllun um fjár- og skattamál foretans og Post fyrir að afhjúpa greiðslur forsetans til tveggja fyrrverandi ástkvenna sinna.

Capital Gazette hlaut sérstök Pulitzer-verðlaun sem veitt voru í ár fyrir umfjöllun og kjark vegna einnar mannskæðustu árásar sem gerð hefur verið á bandaríska blaðamenn. Dómnefnd verðlaunanna ákvað einnig að styrkja ritstjórn blaðsins um 100 þúsund dollara svo hún geti haldið áfram að eflast.

Fimm starfsmenn Capital Gazette létust í árásinni. Þeim sem eftir stóðu tókst engu að síður að koma blaði næsta dags út.

Tvö önnur staðbundin dagblöð voru verðlaunuð fyrir umfjöllun sína um skotárásir; The Pittsburgh Post-Gazette fyrir árás sem gerð var á samkomuhús gyðinga í Pennsylvaníu þar sem ellefu létust, og South Florida Sun fyrir umfjöllun um skotárásina í Marjory Stoneman Douglas-skólanum í febrúar í fyrra en í henni féllu sautján.

Þá fékk fréttamiðillinn ProPublica sín fimmtu Pulitzer-verðlaun, nú fyrir greinaflokkinn Trapped in Gangland sem fjallar um innflytjendur á Long Island og áhrif harðrar innflytjendastefnu Trumps á líf þeirra og störf.

Hér má lesa um alla þá sem fengu verðlaunin í ár.

Frétt BBC.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert