Missti fingur í fagnaðarlátum

Það brutust út mikil fagnaðarlæti þegar Twente tryggði sér sæti …
Það brutust út mikil fagnaðarlæti þegar Twente tryggði sér sæti í efstu deild hollensku knattspyrnunnar á mánudag. Ljósmynd/Twente

Stuðningsmaður hollenska knattspyrnuliðsins Twente missti fingur þegar hann klifraði yfir grindverk í fagnaðarlátum eftir að liðið komst upp í efstu deild í Hollandi.

Twente gerði jafntefli við varalið AZ Alkmaar á mánudag en stigið dugði liðinu til að tryggja sér sæti í efstu deild á næsta keppnistímabili.

Maðurinn var einn þeirra sem ætlaði að ryðjast inn á völlinn í fagnaðarlátunum eftir leik, þegar hann festi fingurinn í grindverkinu á leið þangað.

Hollensk fréttasíða birti í dag mynd af fingrinum á vellinum við hliðina á sígarettustubbi en fólk sem vinnur við að þrífa völlinn kom auga á hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert