Krefjast betri þjálfunar á MAX-vélarnar

Boeing 737 vél American Airlines.
Boeing 737 vél American Airlines. AFP

Flugmenn og flugstjórar hjá flugfélaginu American Airlines vilja að meiri kröfur verði gerðar til þjálfunar fyrir 737 MAX-vélar flugvélaframleiðandans Boeing. Það sé nauðsynlegt til þess að endurbyggja traust almennings á vélunum.

All­ar Max-vél­ar Boeing hafa verið kyrr­sett­ar frá því að farþegaþota þeirr­ar gerðar í eigu Et­hi­opi­an Air­lines hrapaði 10. mars sl. Sam­bæri­legt flug­slys átti sér stað í Indó­nes­íu í októ­ber, en 346 manns létu lífið í flug­slys­un­um tveim­ur.

Flug­véla­fram­leiðand­inn hef­ur und­an­farn­ar vik­ur unnið að hug­búnaðarbreyt­ing­um sem eiga að koma í veg fyr­ir að svo­nefnt MCAS-kerfi bili, en það á að koma í veg fyr­ir að flug­vél­in of­rísi. Nú þegar Boeing býr sig undir að koma MAX-vélum sínum í gagnið á ný segja flugmenn American Airlines, sem á einn stærsta flota slíkra véla í heimi, að ganga þurfi lengra í þjálfun flugmanna á vélarnar.

Í umfjöllun Reuters um málið segir að Flug­um­ferðarstofn­un Banda­ríkj­anna (FAA) krefjist aðeins lítillar auka þjálfunar á MCAS-kerfið í tölvu. Ekki sé krafist að þjálfunin sé fullreynd í flughermi. Flugmenn vilja hins vegar að gengið sé lengra í þjálfuninni.

Boeing hefur sagt að álit flugmanna muni vega þungt í því að sannfæra almenning um að 737 MAX-vélarnar séu öruggar til flugs á ný.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert