Segist hafa stöðvað valdarán

Forsetinn Nicolas Maduro situr lengst til vinstri.
Forsetinn Nicolas Maduro situr lengst til vinstri. AFP

Nicolas Maduro, forseti Venesúela, segist hafa borið sigurorð af þeim sem hafi reynt að fremja valdarán í landinu. „Þetta verður ekki látið hjá líða án refsingar,“ sagði Maduro í ávarpi sínu sem var bæði sjónvarpað og útvarpað. „Saksóknarar munu höfða mál vegna alvarlegu glæpanna sem hafa verið framdir gagnvart stjórnarskránni, lögunum og réttinum til friðar.“

Mótmælendur og lögreglumenn hafa tekist á á götum Venesúla eftir að stjórnarandstöðuleiðtoginn Juan Guaidó hvatti herinn til að standa upp í hárinu á Maduro. Um eitt hundrað manns hafa særst.

Maduro ræðir við yfirmenn hersins og þingmenn.
Maduro ræðir við yfirmenn hersins og þingmenn. AFP

Forsetinn óskaði hernum til hamingju með að hafa „sigrað þennan litla hóp sem ætlaði að dreifa ofbeldi til að fella ríkisstjórnina“.

Bandaríkjastjórn styður Guaidó og lýsti Donald Trump Bandaríkjaforseti yfir stuðningi við hann og íbúa Venesúela í tísti sínu.

Stuðningsmaður Guaidó í mótmælagöngu í New York-borg.
Stuðningsmaður Guaidó í mótmælagöngu í New York-borg. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert