Á meðal fyrirlesara á Brilliant Minds-ráðstefnunni í Stokkhólmi í ár eru Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, Greta Thunberg loftslagsbaráttukona og Evan Spiegel, stofnandi Snapchat.
Til að komast á ráðstefnuna verður maður að fá boðskort. Aftonbladet sænska talar því um leyniráðstefnu (s. hemligt symposium). Aðeins helstu frumkvöðlar og atkvæðamenn eru aufúsugestir á þessum vettvangi.
Mynd af Obama og Thunberg, sem hlýtur að vera tekin nú meðan á dvöl hans í Svíþjóð stendur, vekur lukku á netinu. Myndin virðist vera tekin af fagmanni í góðu myndveri. Hana er að sjá hér rétt fyrir neðan.
Yes we can.#FridaysForFuture #schoolstrike4climate #ClimateStrike pic.twitter.com/WmCIa7bVNa
— Greta Thunberg (@GretaThunberg) 15 June 2019
Obama hefur ausið viðleitni Thunberg til vitundarvakningar um loftslagsmál lofi á Twitter. Nú fá þau loks að hittast í persónu en eins og frægt er orðið ferðast Thunberg ekki með flugvél vegna umhverfisáhrifa slíks farkosts.
They're people like 16-year-old @GretaThunberg, whose protests at Swedish parliament sparked a movement. Inspired by Greta's action, Fridays for Future brought together more than a million strikers on every continent last month to demand action on climate. https://t.co/un7nBhEF8i
— Barack Obama (@BarackObama) 22 April 2019
Obama kom til Stokkhólms á fimmtudaginn ásamt fjölskyldu sinni til þess að taka til máls á umræddri ráðstefnu. Ráðstefnunni lýkur í dag.
Sama mynd nema á Instagram. Fjöldi manns lætur sér myndina lynda.
View this post on InstagramYes we can. #fridaysforfuture #schoolstrike4climate #climatestrike
A post shared by Greta Thunberg (@gretathunberg) on Jun 15, 2019 at 6:47am PDT