Áætlun Trump „sjálfskapað stórslys“

Joe Biden, sem sem sækist eftir því að verða forsetaframbjóðandi …
Joe Biden, sem sem sækist eftir því að verða forsetaframbjóðandi Demókrata á næsta ári, segir áætlun Donalds Trump Bandaríkjaforseta í samskiptum ríkisins við Íran vera „sjálfskapað stórslys“. AFP

Áætlun Donalds Trump Bandaríkjaforseta í samskiptum ríkisins við Íran, þar á meðal að segja sig frá kjarnorkusamkomulagi ríkjanna, er „sjálfskapað stórslys“ að mati Joe Biden, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna. 

Biden, sem sem sækist eftir því að verða forsetaframbjóðandi Demókrata á næsta ári, kaus að tjá sig um stöðuna í milliríkjasamskiptum Bandaríkjanna og Írans eftir að bandarísk yfirvöld staðfestu að dróni á veg­um hers­ins var skot­inn niður af Írön­um. Drón­inn var skot­inn niður með eld­flaug ír­anska hers­ins þar sem hann var í alþjóðlegri loft­helgi yfir Horm­uz-sundi. Írönsk yf­ir­völd segja aft­ur á móti að drón­inn hafi verið skot­inn niður í ír­anskri loft­helgi.

Trump tjáði sig um atvikið á Twitter og segir hann Írani hafa gert mikil mistök. 

Auknar líkur á hernaðarátökum að mati Biden

„Með því að hörfa frá ríkiserindrekstri hefur Trump aukið líkurnar á hernaðarátökum,“ segir Biden í yfirlýsingu.

Biden var varaforseti í forsetatíð Barack Obama og kom meðal annars að samningaviðræðum við gerð kjarnorkusamkomulags stórveldanna fimm við Íran árið 2015. Í samkomulaginu felst meðal annars takmarkanir á auðgun úrans af hálfu íranskra stjórnvalda.

Banda­rík­in ákváðu að draga sig úr sam­komu­lag­inu í fyrra og refsiaðgerðir gegn Íran hóf­ust að nýju í kjöl­farið. Í maí síðastliðnum greindu Íran­ar frá því að þeir ætluðu ekki fylgja þess­um tak­mörk­un­um leng­ur vegna ákvörðunar Banda­ríkja­manna.

Mik­il spenna hef­ur ríkt að und­an­förnu á milli Írans og Banda­ríkj­anna vegna árás­ar á tvö tank­skip í Óman­flóa og spennan eykst enn. Biden segir Íran vera „slæman geranda í alþjóðakerfinu sem brýtur gegn mannréttindum og styðji við hryðjuverk.“ Hann segir því mikilvægt að forseti Bandaríkjanna taki vel ígrundaðar ákvarðanir til að sporna gegn þeirri ógn sem stafi af Íran.

Gera má ráð fyrir að málefni Íran og Bandaríkjanna verði fyrirferðamikil þegar fyrstu kappræður forsetaefna Demókrataflokksins fara fram í Miami í næstu viku. Þar mun Biden mæta 19 öðrum frambjóðendum flokksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert