Ekki ákært vegna dauða Garner

Emerald Garner, dóttir Eric Garner heitins og Gwen Carr, móðir …
Emerald Garner, dóttir Eric Garner heitins og Gwen Carr, móðir hans, ræða við fjölmiðla eftir að niðurstaða dómsmálaráðuneytisins var kunngjörð. AFP

Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur tekið ákvörðun um að lögreglumaður í New York, sem tók mann að nafni Eric Garner hengingartaki á götu úti árið 2014 með þeim afleiðingum að hann lést, muni ekki sæta alríkisákæru vegna málsins.

Þetta var tilkynnt í dag, þegar einungis einn dagur er í að fimm ár verði liðin frá atburðinum, sem vakti upp mikla reiði í garð lögreglu. Mál Garner og fleiri svartra manna sem létust eftir viðskipti sín við lögreglu urðu kveikjan að fjöldamótmælum gegn lögregluofbeldi víða um Bandaríkin og Black Lives Matter-hreyfingunni.

Alríkissaksóknarinn Richard P. Donoghue sagði við fjölmiðla í dag að andlát Garner hefði verið hryggilegt, en að sönnunargögn málsins styðji ekki við ákæru á hendur lögreglumanninum Daniel Pantaleo.

Richard Donoghue saksóknari sagði sönnunargögn málsins ekki styðja ákæru á …
Richard Donoghue saksóknari sagði sönnunargögn málsins ekki styðja ákæru á hendur Pantaleo. AFP

„Ég get ekki andað“

Garner var óvopnaður, en hann hafði deilt við lögreglumenn sem sökuðu hann um að selja ólöglegar sígarettur.

„Ég get ekki andað! Ég get ekki andað“ heyr­ðist Garner segja þegar fimm lög­reglu­menn reyndu að koma á hann hand­járn­um. At­b­urður­inn var tek­inn upp á mynd­band og má sjá á því hvernig Pan­ta­leo tók Garner heng­ing­ar­taki eft­ir rifr­ildi þeirra og hvernig Garner barðist fyrir lífi sínu.

Mál Pantaleo er enn til skoðunar hjá lögregluyfirvöldum í New York og verður það í höndum lögreglustjórans James P. O‘Neill að taka endanlega ákvörðun um hvort lögreglumanninum verði gerð einhver refsing vegna málsins, en þyngsta refsing sem hann gæti sætt úr hendi O‘Neill væri brottvikning úr starfi.

New York Times hefur eftir Gwen Carr, móður Garner, að hún og fjölskyldan muni halda áfram að berjast fyrir réttlæti í málinu, þrátt fyrir að það virðist ekki ætla að koma frá dómsmálaráðuneytinu.

Skorað hefur verið á borgar- og lögregluyfirvöld í New York …
Skorað hefur verið á borgar- og lögregluyfirvöld í New York um að reka Pantaleo úr starfi. Mynd frá mótmælum í maímánuði. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert