26 farast og tugir slasaðir eftir bruna

26 manns eru látnir og tugir slasaðir eftir eldsvoðann.
26 manns eru látnir og tugir slasaðir eftir eldsvoðann. AFP

26 manns hið minnsta fórust og tugir slösuðust í elds­voða í teikni­mynda­stúd­íói í Kyoto í Jap­an í morg­un. Lögregla handtók mann á fimmtugsaldri á vettvangi, en hann hafði úðað bensíni um kvikmyndaverið áður en hann kveikti í.

Japanska NHK-sjónvarpsstöðin segir nokkurra þeirra, sem taldir eru hafa verið inni í húsinu er eldurinn kviknaði, enn vera saknað.

Shinzo Abe, forsætisráðherra Japan, sagði atburðinn of skelfilegan til að orð fengju honum lýst, er hann vottaði fórnarlömbunum og aðstandendum þeirra samúð sína.

Slökkviliðsmaður að störfum.
Slökkviliðsmaður að störfum. AFP

Sam­kvæmt japönsk­um fjöl­miðlum braut maður sér leið inn í mynd­ver Kyoto Ani­mati­on Co. og úðaði þar bensínvökva. Hann var svo handtekinn og flutt­ur á sjúkra­hús til aðhlynn­ing­ar vegna sára sem hann hlaut í eld­in­um. Björg­un­araðgerðum er ekki lokið.

 „Karl­maður úðaði vökva og kveikti svo í hon­um,“ hafði AFP-frétta­veit­an eft­ir tals­manni lög­reglu­yf­ir­valda í Kyoto fyrr í morgun. Ekki hef­ur verið upp­lýst um hver ástæða árás­ar­inn­ar kunni að vera, né heldur hvort að maðurinn hafi tengst fyrirtækinu með einhverjum hætti.

Jap­anska NHK-sjón­varps­stöðin seg­ir vitni hafa heyrt mann­inn segja „drep­ist“ áður en hann kveikti í hús­inu. Þá er lögregla sögð hafa fundi hnífa á vettvangi.

Eld­ur­inn kviknaði í kvik­mynda­ver­inu, sem er í þriggja hæða bygg­ingu, um hálfell­efu­leytið í morg­un að staðar­tíma.

Sam­kvæmt japönsk­um fjöl­miðlum braut maður sér leið inn í mynd­verið …
Sam­kvæmt japönsk­um fjöl­miðlum braut maður sér leið inn í mynd­verið og úðaði þar bensínvökva. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert