Óska eftir aðstoð Þjóðverja

Frá Hormuz-sundi.
Frá Hormuz-sundi. AFP

Bandaríkin hafa óskað eftir aðstoð Þjóðverja við að „tryggja öryggi á Horm­uz-sundi“. Mikil spenna hefur ríkt á Persaflóa síðustu daga og vikur.

Í gær var greint frá því að tvö bresk herskip væru á Persaflóa. Þar eru þau stödd í þeim tilgangi að veita ol­íu­skip­um sem sigla und­ir fána Bret­lands vernd á leið þeirra í gegn­um Horm­uz-sund í kjöl­far þess að Íran­ar kyrr­settu breskt ol­íu­skip fyrr í mánuðinum.

Bandaríkin biðja Þjóðverja um að ganga til liðs við Frakka, Breta og Bandaríkin í því sem þeir segja að eigi að tryggja öryggi á Hormuz-sundi. Saman geti ríkin barist gegn yfirgangi Írana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert