Fimmtíu og sjö manns eru látnir eftir að olíuflutningabíll sprakk eftir að hafa oltið í Morogoro, um 200 kílómetrum vestur af borginni Dar es Salaam í Tansaníu.
„Það varð mikil sprenging og að minnsta kosti 57 eru látnir,“ sagði yfirlögregluþjónninn Willbrod Mtafungwa og bætti við að flestir þeirra sem létust er þeir reyndu að ná í eldsneyti sem hafði lekið út tanki bílsins.
Að sögn lögreglunnar er líklegt að eldurinn hafi kviknað af völdum sígarettuglóðar.