Greta mun ekki láta sjóveikina á sig fá

Sænski um­hverfisaðgerðasinninn Greta Thun­berg mun verja næstu tveimur vikum um …
Sænski um­hverfisaðgerðasinninn Greta Thun­berg mun verja næstu tveimur vikum um borð í umhverfisvænni skútu á Atlantshafinu. Leiðin liggur frá Bretlandi til New York þar sem hún mun ávarpa loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. AFP

Ekkert klósett, engin eldhúsaðstaða og lítið sem ekkert næði. Svohljóðandi verða aðstæður sænska um­hverfisaðgerðasinnans Gretu Thun­berg næstu tvær vikurnar um borð í 60 feta skút­unni Malizia II. 

Greta mun ferðast með skútunni yfir Atlantshafið til Bandaríkjanna þar sem hún mun ávarpa loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem fram fer í New York í september. Síðar í mánuðinum mun hún ávarpa COP25-ráðstefnuna í Santiago. Greta flýg­ur ekki vegna los­un­ar­áhrifa flug­sam­gangna og var því í erfiðleik­um með að finna leið til þess að ferðast þangað.  

Áhöfn Malizia II hafði sam­band við Gretu og bauð henni far yfir Atlants­hafið, en faðir henn­ar mun einnig ferðast með henni. Skútan er knúin sólarrafhlöðum og sérstakri túrbínu sem framleiðir rafmagn með vistvænum hætti. Greta kynnti sér aðstæður í skútunni í dag: 

„Ég gæti orðið sjóveik og þetta verður ekki þægilegt, en ég get höndlað það,“ segir Greta í samtali við blaðamann BBC, sem kynnti sér einnig aðstæður í dag. 

„Ef þetta verður mjög erfitt get ég huggað mig við það að þetta verða bara tvær vikur,“ bætir Greta við, sem mun sofa í lítilli koju og gera þarfir sínar í litla bláa tunnu. 

Skilaboðin eru skýr: „poo's only please
Skilaboðin eru skýr: „poo's only please" eða: „Eingöngu kúkur takk fyrir,“ á eina „klósettinu“ sem er að finna í skútunni. AFP

„Engin sturta, við förum bara í föt og erum í þeim næstu tvær vikurnar,“ segir Bor­is Herr­mann, skip­stjóri Malizia II.

Greta kippir sér ekki upp við það, en með því að ferðast með skútunni vill hún senda þau skilaboð að loftslagsváin sé svo sannarlega til staðar og að við henni þurfi að bregðast. 

Stefnt er að því að leggja í hann á morgun frá Plymouth í Bretlandi. 

„Ég gæti orðið sjóveik og þetta verður ekki þægilegt, en …
„Ég gæti orðið sjóveik og þetta verður ekki þægilegt, en ég get höndlað það,“ segir Greta Thunberg. AFP

Frétt BBC

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert