Óþægindatilfinning frekar en hræðsla

Miklir gróðureldar hafa verið á eyjunni Gran Canaria.
Miklir gróðureldar hafa verið á eyjunni Gran Canaria. AFP

„Þetta er það eina sem fólk ræðir um á götunum. Það fylgir því kannski ekki hræðsla heldur frekar óþægindatilfinning að upplifa þrjá stóra gróðurelda á stuttum tíma,“ segir Birgitta Ósk Pétursdóttir, fararstjóri hjá Vita, en hún býr á Gran Canaria, einni Kanaríeyjanna.

Gróðureldarnir þar virðast nú stjórnlausir.

Birgitta segir að fólk hafi verið í áfalli út af fyrsta gróðurbrunanum sem talið hafi verið að væri sá stærsti sem kviknað gæti. Áfallið sé því meira þegar nýir eldar og enn stærri geisi.

Birgitta býr á suðurhluta eyjarinnar þar sem flest hótelin og ferðamennirnir eru. Hún segir þó að eldarnir sjáist frá þjóðvegum á kvöldin og slökkvistarfið fari ekki fram hjá nokkrum manni því þyrlur séu í stöðugum flutningum með vatn frá ströndinni.

Yfir 8.000 íbúar hafa þurft að yfirgefa heimili sín og einhver hús hafa brunnið en ekki er vitað um slys á fólki. Eldurinn hefur farið yfir um sex þúsund hektara svæði og hefur meðal annars náð inn í þjóðgarða og ógnar náttúruverndarsvæðum.

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert