Segir símtalið ótvírætt dæmi um spillingu

Joe Biden, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og frambjóðandi í forvali demókrata …
Joe Biden, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og frambjóðandi í forvali demókrata fyrir forsetakosningar á næsta ári, krefst þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti birti þegar í stað uppskrift á símtali hans við forseta Úkraínu. AFP

Joe Biden, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og frambjóðandi í forvali demókrata fyrir forsetakosningar á næsta ári, krefst þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti birti þegar í stað uppskrift af símtali hans við forseta Úkraínu. 

Starfsmaður leyniþjónustu Bandaríkjanna hefur lagt fram formlega uppljóstrunarkvörtun vegna samtalsins þar sem Trump er sagður hafa þrýst á Volody­myr Zelen­skyy Úkraínuforseta að afla upplýsinga um Biden gegn fyrirheitum um fyrirgreiðslu. 

Trump hefur neitað ásökuninni og sagði það heimsku­legt að halda því fram að hann myndi segja eitt­hvað óviðeig­andi við ann­an þjóðarleiðtoga þegar hann vissi að mörg eyru legðu við hlust­ir. 

Biden fordæmir framgöngu Trumps í málinu og segir hana ótvírætt dæmi um spillingu sem „skaðar og lítillækkar stjórnkerfi okkar og stofnanir þess með því að gera þær að verkfærum í persónulegum pólitískum bardögum“. Krefst hann að uppskrift símtalsins verði birt sem fyrst og þannig geti bandaríska þjóðin dæmt um það sjálf hvort um spillingu sé að ræða eða ekki. 

Demó­krat­ar á þingi reyni að fá kvört­un­ina af­henta en yf­ir­maður leyniþjón­ust­unn­ar hef­ur ekki látið hana af hendi. Þingmennirnir hafa rann­sakað hvort Trump og lögmaður hans, Rudy Giuli­ani, reyndu að þrýsta á rík­is­stjórn Úkraínu að rann­saka Biden og son hans, Hun­ter Biden, sem starfaði í gas­fyr­ir­tæki í Úkraínu, í þeim tilgangi að grafa upp upplýsingar sem gætu komið sér illa fyrir Biden í kosningabaráttunni sem fram undan er. 

Biden segir jafnframt að Trump ætti að sjá sóma sinn í að skipa yfirmanni leyniþjónustunnar að hætta að hamla rannsókn málsins og afhenda Bandaríkjaþingi kvörtunina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert