Fær Greta Nóbelinn?

Greta Thunberg er 16 ára sænskur aðgerðasinni.
Greta Thunberg er 16 ára sænskur aðgerðasinni. AFP

Sérfræðingar fara varlega í allar fullyrðingar en veðmangarar veðja á Gretu Thunberg og loftslagsbaráttu hennar þegar kemur að friðarverðlaunum Nóbels. Tilkynnt verður um handhafa verðlaunanna í næstu viku.

Tveir einstaklingar munu hljóta bókmenntaverðlaunin í ár þar sem veitingu verðlaunanna var frestað í fyrra vegna hneykslismáls tengdu dómnefndinni. 

Þrátt fyrir meðbyr Gretu Thunberg í veðbönkum er afar erfitt að segja til um hvort hún eigi möguleika því listinn yfir þá sem koma til greina er ekki birtur opinberlega. Síðast en ekki síst deila sérfræðingar um hvort það sé bein tenging á milli loftslags og vopnaðra átaka. Tilkynnt verður um friðarverðlaunin í Ósló 11. október. 

Daginn áður er aftur á móti von á tilkynningu frá sænsku nóbelsverðlaunaakademíunni um handhafa bókmenntaverðlauna Nóbels. Í fyrra var tikynnt um að engin bókmenntaverðlaun yrðu afhent það árið en bók­mennta­verðlaun Nó­bels voru fyrst af­hent árið 1901. Þetta er í fyrsta sinn frá því að seinni heimsstyrj­öld­inni lauk að verðlaun­in eru ekki af­hent. Sjö sinn­um hef­ur ekki verið hægt að veita verðlaun­in á til­sett­um tíma, en í þau skipti voru þau af­hent síðar.  

Allt hófst þetta með #MeT­oo-her­ferðinni í nóv­em­ber 2017 en þá birti sænska dag­blaðið Dagens Nyheter frá­sagn­ir átján kvenna sem sökuðu Jean-Clau­de Arnault, sem verið hef­ur mjög áhrifa­mik­ill í sænsku bók­mennta­lífi um ára­bil, um að hafa nauðgað þeim, beitt þær kyn­ferðis­legu of­beldi eða áreitt þær kyn­ferðis­lega. 

Arnault er kvæntur skáld­kon­unni Kat­ar­inu Frosten­son (val­in inn í aka­demí­una 1992). Þau hjón­in hafa um langt ára­bil rekið bók­mennta­klúbb­inn For­um, sem þau eiga, og notið góðs af fjár­fram­lög­um frá aka­demí­unni.

Tveim­ur dög­um eft­ir að lög­regl­an hóf rann­sókn á ásök­un­um kvenn­anna í des­em­ber sleit Sænska aka­demí­an öll tengsl sín við Arnault.

Meðal þeirra sem eru nefnd sem mögulegir handhafar í ár er pólska skáldkonan Olga Tokarczuk, Ngugi Wa Thiong'o frá Kenýa, Ismail Kadare frá Albaníu,  Joyce Carol Oates frá Bandaríkjunum og Haruki Murakami frá Japan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert