Háttsettur yfirmaður hjá Boeing rekinn

Kevin McAllister hefur verið sagt upp störfum hjá Boeing.
Kevin McAllister hefur verið sagt upp störfum hjá Boeing. AFP

Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing tilkynnti í dag að Kevin McAllister, yfirmanni deildar fyrirtækisins sem sér um framleiðslu á farþegaflugvélum, hefði verið sagt upp störfum að því er segir í frétt AFP-fréttaveitunnar.

Fram kemur í fréttinni að þetta sé hæst setti stjórnandinn hjá Boeing sem hefur þurft að taka pokann sinn frá því vandræði fyrirtækisins hófust vegna Boeing 737 MAX-farþegaþotna þess sem kyrrsettar hafa verið víða um heim í kjölfar tveggja mannskæðra flugslysa sem rakin hafa verið til galla í vélunum.

Starfi McAllister tekur Stan Deal við sem verið hefur yfirmaður alþjóðlegs þjónustusviðs fyrirtækisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert