Al Jazeera birtir Samherjaumfjöllun 1. desember

Sérstaklega er tekið fram í frétt Al Jazeera að Samherji …
Sérstaklega er tekið fram í frétt Al Jazeera að Samherji selji fisk til verslanakeðja á borð við Marks & Spencer, Carrefour, Tesco og Sainsbury‘s.

Katarski fjölmiðillinn Al Jazeera mun birta rannsókn sína sem tengist málefnum Samherja í Namibíu 1. desember, en þetta kemur fram í frétt á vef Al Jazeera sem birtist í gærkvöldi.

Fjölmiðillinn hefur unnið að rannsókninni í samstarfi við Wikileaks, RÚV og Stundina, sem hafa þegar birt skjöl og ítarlegar umfjallanir um málið.

Fiskifléttan er mál málanna í Namibíu, rétt eins og á …
Fiskifléttan er mál málanna í Namibíu, rétt eins og á Íslandi, þessa dagana. Í dag kom vikublaðið Confidénte út og þar eru þeir saman á forsíðunni, Helgi Seljan fréttamaður og Bernard Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra.

Í frétt Al Jazeera er aðallega fjallað um þau tíðindi gærdagsins að tveir ráðherrar í namibísku ríkisstjórninni hafi sagt af sér vegna uppljóstrana í málinu, þeir Bernhard Esau og Sacky Shanghala.

Þá er sjávarútvegsfyrirtækið Samherji kynnt til leiks fyrir lesendum miðilsins og sérstaklega er tekið fram að þetta stærsta útgerðarfélag Íslands selji fisk til verslanakeðja á borð við Marks & Spencer, Carrefour, Tesco og Sainsbury‘s.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert