Farið fram á afsögn þriðja hákarlsins

James Hatuikulipi.
James Hatuikulipi. Ljósmynd af vef Seaflower

Ráðherra sem fer málefni ríkisfyrirtækja í Namibíu, Leon Jooste, sendi í gær bréf til starfandi sjávarútvegsráðherra, Albert Kawana, þar sem óskað er eftir því að stjórnarformanni Fishcor, James Hatuikulipi, og framkvæmdastjóra þess, Mike Nghipunya, verði vikið frá störfum í tengslum við rannsókn á mútum Samherja til ráðamanna. Sá fyrrnefndi er einn þriggja „hákarla“ sem ítrekað er fjallað um í Stundinni og Kveik varðandi mútur og önnur umsvif Samherja í Namibíu. 

James Hatuikulipi lét af störfum hjá fjármálafyrirtækinu Investec Asset Management í gær. Starfsbróður hans, Ricardo Gustavo, sem einnig kemur fram í skjölum sem Wikileaks hefur birt, hefur verið vikið úr starfi, samkvæmt fréttum Namibian Sun.

Fátt annað er til umfjöllunar í namibískum fjölmiðlum en spillingarmál tengd fiskveiðiheimildum og Samherja. 

Tveir ráðherrar gengu einnig undir heitinu „hákarlarnir“ í Kveik á þriðjudagskvöldið en þeir hafa báðir sagt af sér embætti í kjölfar birtingar gagnanna. Það eru sjávarútvegsráðherrann, Bernhard Esau, og dómsmálaráðherran, Sacky Shanghala. Forseti landsins, Hage Geingob, þrýsti mjög á afsögn þeirra.  

Sjá nánar hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert