14 létust í sprengjutilræði

AFP

Fjórtán létust er sprengja sprakk í bifreið í bænum Al-Bab í norðurhluta Sýrlands í morgun. Af þeim eru níu almennir borgarar. Bærinn er undir yfirráðum Tyrkja. 

Samkvæmt upplýsingum frá Syrian Observatory for Human Rights samtökunum sprakk sprengjan á umferðarmiðstöð bæjarins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert