Draga dómgreind Vindman í efa

Hvíta húsið í Washington.
Hvíta húsið í Washington. AFP

Á sama tíma og Alexander Vindman undirofursti bar vitni fyrir þingnefnd birti Hvíta húsið á opinberum aðgangi embættisins færslu á Twitter þar sem dómgreind Vindman er dregin í efa. Annað vitni, Jennifer Williams, var vart komin úr vitnastúkunni þegar Hvíta húsið gaf út yfirlýsingu þar sem trúverðugleiki hennar er dreginn í efa. 

New York Times og fleiri fjölmiðlar fjölluðu um þetta í gærkvöldi og samkvæmt frétt NYT þykir ekki lengur tiltökumál þegar Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sest niður og skrifar færslu eftir færslu á Twitter þar sem hann ræðst á þá sem hann telur óvini sína þá stundina. Aftur á móti vekur það athygli þegar Hvíta húsið ræðst á tvo starfsmenn embættisins á sama tíma og þeir bera vitni á Bandaríkjaþingi. 

Fjölmargir þingmenn úr röðum repúblikana tóku þátt í Twitter-storminum í gærkvöldi og var Trump duglegur að endurtísta færslum þeirra. Embættismennirnir tveir; Vindman og Williams, voru sagðir marklausir svikarar og Vindman sagður innflytjandi sem hefði brugðist þjóð sinni. 

Frétt BBC

Frétt CNN

Frétt Fox



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert