Að minnsta kosti 22 mótmælendur drepnir

Mikil mótmæli eru nú víða í suðurhluta Íraks. Þessi mynd …
Mikil mótmæli eru nú víða í suðurhluta Íraks. Þessi mynd er tekin í borginni Karbala í dag, þar sem öryggislögregla hefur tekist á við mótmælendur. AFP

Tuttugu og tveir mótmælendur létu lífið og yfir 180 særðust í aðgerðum íraskra stjórnvalda gegn mótmælendum í borginni Nasiriyah í gær, samkvæmt því sem sjúkraliðar í borginni segja AFP-fréttastofunni.

Átök brutust út eftir að stjörnvöld gáfu herforingjum fyrirskipanir um að ná tökum á mótmælum í suðurhluta landsins. Þær skipanir voru gefnar út eftir að mótmælendur kveiktu í sendiskrifstofu nágrannaríkisins Írans í borginni Karbala.

AFP greinir frá því að forsætisráðherra Íraks, Adil Abdul-Mahdi, hafi þegar ávarpað þjóðina vegna þessara mannskæðu aðgerða hersins og tjáð henni að herforinginn sem bar ábyrgð á aðgerðinni hafi fengið reisupassann.

Frá mótmælum í Nasiriyah síðasta sunnudag.
Frá mótmælum í Nasiriyah síðasta sunnudag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert