Fagnaði viðskiptasamningi við Kína

Donald Trump Bandaríkjaforseti við undirritun viðskiptasamningsins í dag ásamt Liu …
Donald Trump Bandaríkjaforseti við undirritun viðskiptasamningsins í dag ásamt Liu He, varaforsætisráðherra Kína. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti í dag ánægju sinni með viðskiptasamning við Kína sem nær til hluta þeirra mála sem ríkin tvö hafa deilt um undanfarin tvö ár.

Trump sagði við undirritun samningsins í dag að um gríðarlega stórt skref væri að ræða sem hefði ekki áður verið gert gagnvart Kína samkvæmt frétt AFP-fréttaveitunnar.

Forsetinn sagði að viðskiptasamningurinn myndi tryggja sanngjörn gagnkvæm viðskipti. Saman væru Bandaríkin og Kína að leiðrétta ranglæti fortíðarinnar.

Hins vegar munu tollar vera áfram til staðar á vörum að andvirði hundruð milljarða dollara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert