Nýr galli í 737 MAX-vélunum

Kyrr­sett­ar Boeing 737 MAX-flug­vél­ar í eigu Sout­hwest-flug­fé­lags­ins í Banda­ríkj­un­um.
Kyrr­sett­ar Boeing 737 MAX-flug­vél­ar í eigu Sout­hwest-flug­fé­lags­ins í Banda­ríkj­un­um. AFP

Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing greindi frá því í dag að nýr galli hefði fundist í hugbúnaði hinna kyrrsettu 737 MAX-véla flugfélagsins.

Í tilkynningu frá Boeing segir að vonir standi til að málið verði leyst á skömmum tíma og að gallinn eigi ekki að leiða til enn frekari tafa við að koma 737 MAX-vélunum aftur í loftið.

Tíu mánuðir eru frá því vél­arn­ar voru kyrr­sett­ar á heimsvísu eft­ir tvö slys sem kostuðu 346 manns­líf. 

„Unnið er að nauðsynlegum uppfærslum í samstarfi við bandaríska flugmálaeftirlitið,“ kom meðal annars fram í yfirlýsingu frá Boeing.

Ekki kom fram í hverju nýi gallinn felst. 

Samkvæmt heimildamanni AFP-fréttastofunnar er gallinn minni háttar og felur í sér bilun í öðrum hugbúnaði þegar kveikt er á flugvélinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert