Seðlabanki Bretlands lækkar stýrivexti

Stýrivaxtalækkun Seðlabanka Bretlands er hluti af viðbrögðum stjórnvalda til að …
Stýrivaxtalækkun Seðlabanka Bretlands er hluti af viðbrögðum stjórnvalda til að bregðast við efnahagslegum áhrifum vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. AFP

Seðlabanki Bretlands hefur lækkað stýrivexti um hálft prósentustig. Aðgerðir bankans eru hluti af viðbrögðum stjórnvalda til að bregðast við efnahagslegum áhrifum vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. 

Stýrivextir voru lækkaðir úr 0,75% í 0,25%, sem er með því lægsta í sögu bankans. Fjármálaráðherra Bretlands mun á næstunni kynna aðgerðir sem stjórnvöld hyggjast ráðast í til að mæta efnahagslegum áhrifum af útbreiðslu kórónuveirunnar. 

Sex hafa látið lífið af völdum COVID-19, sjúkdómsins sem kórónuveiran veldur, og 382 hafa smitast.

Frétt BBC

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert