Bar í Ischgl grunaður um að leyna smiti

Skíðasvæðinu í Ischgl hefur verið lokað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.
Skíðasvæðinu í Ischgl hefur verið lokað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. AFP

Yfirvöld í Tíról í Austurríki hafa falið saksóknara að rannsaka hvort bar í skíðabænum Ischgl hafi láðst að greina yfirvöldum frá kórónuveirusmiti sem kom upp þar í lok febrúar.

Mörg hundruð kórónuveirutilfelli í Austurríki, Þýskalandi og Norðurlöndunum hafa verið rakin til staðarins. Honum var hins vegar ekki verið lokað fyrr en í síðustu viku.

Starfsmaður barsins á samkvæmt frétt BBC að hafa veikst í lok ferbrúar.

Áður höfðu yfirvöld í Tíról vísað því á bug að þau hafi ekki hlustað á íslensk yfirvöld að útbreitt kórónuveirusmit væri í Ischgl.

Staðurinn var snemma skilgreindur áhættusvæði af íslenskum yfirvöldum vegna fjölda fjölda Íslend­inga, og raun­ar fleiri Norður­landa­búa, sem greind­ust með kór­ónu­veiru­smit eft­ir að hafa verið þar á skíðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert