12 ára belgísk stúlka lést af völdum veirunnar

Alls hafa 705 látist af völdum veirunnar í Belgíu.
Alls hafa 705 látist af völdum veirunnar í Belgíu. AFP

Tólf ára gömul belgísk stúlka lést úr COVID-19 sjúkdómnum sem kórónuveiran veldur. Þetta staðfesta heilbrigðisyfirvöld í landinu. AFP-fréttastofan greinir frá.

Mjög sjaldgæft er að börn og ungt fólk látist af völdum veirunnar, en 16 ára gömul frönsk stúlka lést einnig úr COVID-19 fyrir nokkrum dögum. Hún var ekki með neina undirliggjandi sjúkdóma. Talsmaður ríkisstjórnar Belgíu segir að dauðsfall stúlkunnar sé mikið áfall.

Stúlkan er fyrsta barnið sem lætur lífið af völdum veirunnar í Belgíu en samtals hefur hún dregið 705 einstaklinga til dauða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert