Rúmlega 600 þúsund látin af völdum veirunnar

Heilbrigðisstarfsmenn í Bólivíu í Suður-Ameríku.
Heilbrigðisstarfsmenn í Bólivíu í Suður-Ameríku. AFP

Fjöldi þeirra sem lát­ist hafa af völd­um kór­ónu­veirunn­ar á heimsvísu hef­ur náð 600.000 sam­kvæmt op­in­berri taln­ingu, en staðfest tilfelli eru 14.233.355.

Kórónuveiran er enn í miklum vexti í Suður-Ameríku þar sem 160.000 manns hafa látist.

Er það næst mesti skráði fjöldi dauðsfalla í heimsálfu en einungis í Evrópu hafa fleiri látist af völdum veirunnar; 205.000.

Á þriðja hundrað þúsund nýrra tilfella kórónuveiru greinast nú daglega á heimsvísu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert