Fjöldafundur í París í minningu kennarans

Mannfjöldi á Lýðveldistorginu í París. Það sést ekki á þessari, …
Mannfjöldi á Lýðveldistorginu í París. Það sést ekki á þessari, en af öðrum myndum að dæma voru nær allir viðstaddir með grímu enda grímuskylda utandyra í Frakklandi. AFP

Þúsundir söfnuðust saman á Lýðveldistorginu í París í dag til að minnast kennara sem öfgafullur íslamisti hálshjó í síðustu viku eftir að hann hafði sýnt nemendum sínum myndir af spámanninum Múhammeð.

Mótmælendur héldu sumir á skiltum sem á stóð: „Nei við alræðishyggju hugsana“ og „Ég er Samúel“, vísun í Je suis Charlie (Ég er Charlie), slagorðið sem frægt varð eftir hryðjuverkaárásina á skrifstofur skopmyndatímaritsins Charlie Hebdo í París.

Samskonar fjöldasamkomur hafa einnig verið skipulagðar í öðrum stórborgum, svo sem Lyon, Toulousse, Strassborg, Nantes, Lille, Marseille og Bordeaux.

Meðal viðstaddra voru Anne Hidalgo, borgarstjóri Parísar, og Jean Castex forsætisráðherra. Fyrir fundinn hafði Jean-Michel Blanquer í sjónvarpsviðtali hvatt „alla til að styðja kennara“ og „sýna samstöðu og einingu“.

Hryðjuverkasaksóknari Frakklands greindi frá því í gær að Samuel Pary, kennarinn sem var drepinn, hefði orðið fyrir hótunum á netinu fyrir að sýna skopmyndirnar áður en hann var drepinn.

Faðir einnar stelpu í skólanum hefði til að mynda kallað eftir „fjöldahreyfingu“ gegn kennaranum og farið fram á að hann yrði rekinn. Maðurinn er á meðal þeirra ellefu sem hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Í frétt sænska ríkissjónvarpsins má sjá myndband sem sýnir handtöku meints geranda.



AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert