Hundrað múmíur fundust í Egyptalandi

Rúmlega hundrað nýfundnar múmíukistur voru til sýnis í Egyptalandi í …
Rúmlega hundrað nýfundnar múmíukistur voru til sýnis í Egyptalandi í dag. AFP

Yfirvöld í Egyptalandi tilkynntu í dag uppgötvun rúmlega hundrað múmíukista sem eru allt að 2.500 ára gamlar, en það er stærsti fundur af því tagi á árinu.

Í kistunum, sem eru innsiglaðar og úr viði, eru múmíur helstu ráðamanna frá síðtímabili Egyptalands hins forna til hins svokallaða Ptólmæosartímabils. Kisturnar fundust á tólf metra dýpi í Saqqaragrafreitnum sem er sunnan höfuðborgarinnar Kaíró, en þar er tugi píramída og helgistaða að finna.

Margar múmíanna eru ríkulega skreyttar.
Margar múmíanna eru ríkulega skreyttar. AFP

Fornleifafræðingar opnuðu eina kistu til sýningar og mátti þar sjá smurða múmíu, vafða í líkklæði sem skreytt var skærlitu myndletri. Kistunum verður dreift til helstu safna Egyptalands, þ.á m. hins glænýja Gizasafns sem verður opnað á næsta ári.

Þessi mikli fundur kemur til einungis mánuði eftir að fornleifafræðingar fundu aðrar 59 vel varðar múmíukistur á svæðinu.

„Saqqara á enn eftir að opinbera allar sínar gersemar. Svæðið er fjársjóður,“ sagði ferðamálaráðherra landsins við hátíðlega opnun, samkvæmt AFP-fréttaveitunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert