Trump lætur Giuliani ráða för

Rudy Giuliani, persónulegur lögmaður Trump.
Rudy Giuliani, persónulegur lögmaður Trump. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur fært lögmanni sínum Rudy Giuliani það verkefni að fara fyrir ákærum framboðs Trumps vegna talningar atkvæða í þó nokkrum ríkjum Bandaríkjanna í forsetakosningunum sem fram fóru 3. nóvember. 

Þetta hefur New York Times eftir heimildarmönnum miðilsins. 

Mun þessi ákvörðun Trumps hafa valdið pirringi hjá starfsmönnum Hvíta hússins og framboðs Trumps. Ráðgjafar hans hafa sumir sakað Giuliani um að gefa forsetanum falskar vonir um framgang ákæranna og hafa lýst yfir áhyggjum af því að með framferði sínu skaði Giuliani arfleifð forsetatíðar Trumps.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert