Bannar þegnum sínum að keppa við Ísrael

Æðsti leiðtogi Írans Ali Khamenei á móttöku Ólympíufara í dag.
Æðsti leiðtogi Írans Ali Khamenei á móttöku Ólympíufara í dag. AFP

Leiðtogi Írans, Ayatollah Ali Khamenei, árétti reglu sína í dag um bann við skipulögðum kappleikjum við Ísraela. Hann lofaði því auk þess að styðja við bakið á íþróttamönnum sem væru beittir viðurlögum af alþjóða íþróttasamböndum vegna þessarar reglu.

Íran hefur ekki viðurkennt sjálfstæði og fullveldi Ísraels sem ríki og íranskir íþróttamenn forðast í lengstu lög að keppa við ísraelska, bæði með því að neita að spila og gefa leiki gegn þeim. 

Segir Ísrael nota íþróttir til að fá viðurkenningu

„Engin heiðarlegur Írani getur tekið í höndina á fulltrúa glæpaveldis til þess að fá medalíu,“ sagði Kahmenei á móttöku fyrir íranska Ólympíufara í dag. 

Á vefsíðu leiðtogans voru eftirfarandi ummæli birt: „Þessi ólögmæta og blóðþyrsta zíoníska valdstjórn reynir að fá viðurkenningu með því að taka þátt í alþjóðlegum íþróttaviðburðum þar sem drambsamar, vestrænar þjóðir eru meðal gesta. Íþróttamennirnir okkar geta ekki setið hljóðlátir hjá á meðan annað eins á sér stað.“

Íran vann fjölda verðlauna á Ólympíuleikunum í ár, þar á meðal þrjár gullmedalíur og 24 medalíur á Ólympíuleikum fatlaðra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert