Herinn bakkar og Hamdok tekur aftur við stjórninni

Abdalla Hamdok er aftur á leið í stól forsætisráðherrans.
Abdalla Hamdok er aftur á leið í stól forsætisráðherrans. AFP

Abdel Fattah al-Burhan, yfirhershöfðingi og forsprakki valdaránsins í Súdan, og Abdallah Hamdok, forsætisráðherra Súdans, hafa komist að þeirri niðurstöðu að Hamdok taki aftur við stjórn landsins. Þá er áformað að ráðherrum og háttsettum embættismönnum í Súdan sem höfðu verið hnepptir í varðhald verði sleppt úr haldi. 

al-Burhan lýsti yfir neyðarástandi í Súdan þann 25. október síðastliðinn og steypti ríkisstjórninni af stóli. Hamdok hefur verið í stofufangelsi síðan en mikil mótmæli brutust út eftir valdaránið. 40 mótmælendur hafa verið drepnir.

Alþjóðasamfélagið fordæmdi valdaránið. 

Frá mótmælum gegn valdaráninu.
Frá mótmælum gegn valdaráninu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert