Segir að sjálfsvörn sé „ekki ólögleg“

Kyle Rittenhouse í dómsalnum.
Kyle Rittenhouse í dómsalnum. AFP

Kyle Rittenhouse, bandaríski táningurinn sem var sýknaður eftir að hafa skotið tvo menn til bana á meðan á mótmælum stóð og uppþotum gegn lögreglunni, segir að sjálfsvörn sé „ekki ólögleg“. Mótmæli brutust út víða í Bandaríkjunum eftir að hann var sýknaður.

Rittenhouse, sem er 18 ára, var á föstudaginn sýknaður af öllum ákæruliðum. Verið var að mótmæla kynþáttafordómum í borginni Kenosha í ríkinu Wisconsin í fyrra þegar hann lét skotin ríða af.

Í sjónvarpsviðtali við Fox News sagðist Rittenhouse finna fyrir miklum létti eftir sýknudóminn og að „erfitt ferðalag“ sé á enda runnið.

„Kviðdómurinn komst að réttri niðurstöðu. Sjálfsvörn er ekki ólögleg,“ sagði Rittenhouse en viðtalið verður sýnt í heild sinni í kvöld. Heimildarmynd um málið fer síðan í loftið í desember.

„Ég er ánægður með að allt fór vel...Við komumst í gegnum erfiðasta hjallann,“ bætti hann við.

Joe Biden Bandaríkjaforseti hafði áður lýst yfir vonbrigðum sínum með niðurstöðu kviðdómsins og hvatti fólk til að sýna stillingu. 

Sýknudóminum mótmælt í borginni Kenosha.
Sýknudóminum mótmælt í borginni Kenosha. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert