Danski sjóherinn skaut fjóra sjóræningja til bana

Fimm voru skotnir, fjórir létust en einn særðist.
Fimm voru skotnir, fjórir létust en einn særðist. SCANPIX SWEDEN

Danski sjóherinn varð fjórum sjóræningjum að bana úti fyrir ströndu Nígeríu í gær eftir að kom til skotbardaga. Danski herinn greinir frá þessu í tilkynningu.

Engir danskir hermenn særðust en fimm sjóræningjar voru skotnir. Fjórir þeirra eru látnir. Einn er særður,” sagði í tilkynningunni.

Til skotbardagans kom í gær eftir að sjóræningjarnir reyndu að komast um borð í danska varðskipið Esbern Snare, sem hefur verið við eftirlit á svæðinu síðan í byrjun þessa mánaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert