Hitamet slegin víða á Spáni

Heilbrigðisráðuneyti Spánar hvetur fólk til að drekka mikið af vatni.
Heilbrigðisráðuneyti Spánar hvetur fólk til að drekka mikið af vatni. AFP

Hitamet hafa verið slegin víða á Spáni í mámánuði en hiti hefur sumstaðar farið yfir 40 gráður. 

Spænska veðurstofan varaði við hitabylgjum í tíu héruðum í dag og sagði að um væri að ræða „áköfustu“ hitabylgjur sem hafa sést í nokkur ár. 

BBC greinir frá því að hitamet hafi verið sett í borginni Jaén á Suður-Spáni á föstudag en hiti mældist 40 gráður. 

Þessi óeðlilega mikli hiti, fyrir þennan árstíma, orsakast af hlýjum vindum sem berst frá Norður-Afríku. Þeir valda því að hiti mælist um 15 gráðum meiri en á sama tíma í fyrra. 

Mesta hitann má finna í héruðunum Andalúsíu, Extremadúra, Kastilíu-La Mancha, Aragon og í höfuðborginni Madríd. 

Heilbrigðisráðuneyti Spánar hvetur fólk til að drekka mikið af vatni og halda sig frá sólinni eins og hægt er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert